Euniq 6

Rafgeymir
70 kWst
Farangursrými
754 lítrar

EUNIQ6

Euniq 6 er stór, rafknúinn sport jepplingur hannaður jafnt til daglegra nota og lengri ferða. Hann er með stærsta farangursrými í stærðarflokknum, alls 754 lítra, og ríkulega búinn í staðalgerð. Þetta er hinn fullkomni rafbíll fyrir alla fjölskylduna. 

HÁMARKS BÚNAÐUR

Innifalið í verði Euniq6 er mikill og ríkulegur búnaður. Þar má meðal annars nefna Apple Carplay og Android Auto, stóra sóllúgu, umhverfislýsingu í 64 mismunandi litum, þráðlausa farsímahleðslu, lykillaust aðgengi og ræsingu, rafstýrt ökumannssæti með sex stillingum og svarta leðurinnréttingu.  

Bíllinn kemur einnig með öryggisbúnaði af margvíslegu tagi og akstursstoðkerfum sem stuðla að auknu öryggi í akstri. Það sem fylgir bílnum er meðal annars hraðastillir með aðlögun, 360° myndavél, akreinavari, blindblettsvari, sjálfvirkt neyðarhemlunarkerfi, bílastæðavarar að framan og aftan, rafeindastýrð stöðugleikastýring og fjöldi annarra aðgerða. 

Með Euniq6 fylgir því ríkulegur búnaðarpakki.

FÁÐU MEST FYRIR PENINGINN
Hámarks
farangursrými
Hámarks
búnaðarpakki
Hámarks
tækni

HÁMARKS RÝMI

Euniq6 er stór sport jepplingur með rými fyrir allt það nauðsynlegasta og  meira til. Bíllinn er 4.735 mm á lengd, 1.860 mm á breidd og 1.736 mm á hæð. Hjólhafið er 2.760 mm og hæð undir lægsta punkt 190 mm. 

Euniq6 býður upp á stærsta farangursrýmið í stærðarflokknum sem er hvorki meira né minna en 754 lítrar. Það þarf því aldrei að hafa áhyggjur af plássleysi. 

Mikið og gott rými er bæði fyrir farþega í fram- og aftursætum með rúmgóðu svæði fyrir fætur og mikilli lofthæð, jafnt fyrir ökumann og farþega.

HÁMARKS HÖNNUN

Það fer ekki milli mála að Euniq6 sport jepplingur kallar á athygli í umferðinni. Hann státar af nútímalegum og laglegum formlínum, glæsilegum og sportlegum framenda sem koma saman í einni heildrænni og laglegri hönnun. 

Bíllinn er meðal annars með fullbúinni LED tækni, kemur á 18“ álfelgum og er með stóra, rafstýrða sóllúgu.

Hvítur
Svartur
Rauður
Silfurgrár

RAFGEYMIR OG HLEÐSLA

í Euniq6 er 70 kWst rafgeymir. Í bílnum er innbyggt 7,2 kW hleðslutæki fyrir heimahleðslu og í hraðhleðslu tekur 35 mínútur við eðlilegt hitastig að hlaða rafgeyminn úr 30-80% hleðslu. 

AKSTURSDRÆGI OG ORKUNOTKUN

Uppgefið akstursdrægi Euniq6 sportjeppans er 350*-452* km (WLTP blandaður akstur/þéttbýlisakstur), og hann er því sérstaklega hentugur til daglegrar notkunar jafnt sem lengri ferða. 

*Margir þættir geta haft áhrif á akstursdrægi, svo sem akstursvenjur, lofthiti, loftþrýstingur í hjólbörðum og fleira. Uppgefið akstursdrægi byggir á WLTP prófunum bæði í blönduðum akstri og akstri í þéttbýli. Tæknilegar útlistanir verða uppfærðar þegar endanleg gerðarviðurkenning liggur fyrir.

SÖLUAÐILAR

Viltu komast í samband við söluaðila okkar?

Smelltu hér til að fá frekar upplýsingar.

Hafðu samband

Viltu reynsluaka Euniq 6 eða fá frekari upplýsingar um hann? Fylltu út formið hér að neðan og einn af sölumönnum okkar hefur samband við þig.

Hver er fyrirspurn þín

Hvaða týpa

Velja söluaðila

Velja söluaðila

Ég vil hafa samband vegna

Þín beiðni

Þínar tengiliðaupplýsingar

 Við ábyrgjumst að persónuupplýsingar þínar séu ekki afhentar óviðkomandi þriðja aðila í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf hér.